Thursday, September 18, 2014

Breytt dagsetning á mótinu

Jæja þetta er sagan endalausa það var vitlaus dagsetning á skjalinu.....

ÞAÐ ER SPILAÐ Á LAUGARDEGINUM 20 sept.
En tímasetningarnar á leikjunum standa.

Þeir sem eru ekki í grúbbunni endlega að adda sér þar inn

https://www.facebook.com/groups/274692546030303/

Kv Brynjar

Wednesday, September 17, 2014

Reykjavíkurmót 6 flokkur eldra

Hérna er loka skjalið fyrir mótið um helgina.
Breytingar urðu á skjalinu frá því í dag sem fór með strákunum heim.
Mótið er spilað á sunnudeginum og mæting er 08:30 Laugardagshöllin

Kv Brynjar



Wednesday, September 10, 2014

Sæl


Æfingin í dag 10 september er 15:00 í Seljaskóla

Kv Brynjar

Sunday, June 8, 2014

Handboltaskóli ÍR

Minnum á handboltaskóla ÍR sem byrjar á þriðjudaginn! 

Tveggja vikna handboltanámskeið fyrir krakka fædd 2004-1997. Æfingar standa yfir í tvær klukkustundir dag hvern og fara fram í íþróttahúsinu við Austurberg.

Skólastjóri er Sigurjón Björnsson(Sjonni)! Sjonni er hokinn af reynsu, en hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur þjálfað handbolta í 6 ár, allt frá 6. Flokki upp í 3. Flokk. Sjonni hefur spilað í meistaraflokki síðan 2006 og varð íslandmeistari með HK 2011 og bikar- og meistari meistarana með ÍR 2013. Sjonni er uppalinn ÍR-ingur og hefur alla sinn ferill leikið með ÍR utan tvö ár sem hann lék með HK. 

Takmarkaður fjöldi kemst að í hvort námskeið og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst.

Námskeiðsvikur:
10.-24. júní
5.-18. ágúst

Æfingatímar og aldursflokkar:
10-12 ára(02-04) kl. 09:00-11:00
13-14 ára(01-00) kl. 11:30-13:30
15-16 ára(99-97) kl. 13:30-15:30

Verð: 14.500 kr.
Skráning á www.ir.is

Nánari upplýsingar hjá starfsfólki ÍR í síma 587-7080