Monday, April 30, 2012

MYNDATAKA - ALLIR FLOKKAR - SKYLDUMÆTING

Það verður myndataka af öllum flokkum í Austurbergi næsta fimmtudag, 3. maí kl.17:30 (tekur ca 1 tíma).

Það verða teknar myndir af hverjum flokk fyrir sig og svo öllum flokkunum saman ásamt meistaraflokk.

SKYLDUMÆTING, ENGIN UNDANTEKNING! 
ALLIR AÐ MÆTA Í KEPPNISBÚNING. 


Allar æfingar á milli kl. 17:30 og 19:00 falla niður. Það verður óvænt uppákoma sem enginn ÍRingur vill missa af.


Með ÍR kveðju, barna-unglingaráð og stjórn handknattleiksdeildar ÍR

1 Maí

Það er einginn æfing Þriðjudaginn 1 maí vegna þess að íþrótta húsin eru lokuð.

Saturday, April 21, 2012

Vestmannaeyjar

Á síðasta foreldrafundi var rætt um helgina sem framundan er. Reynt var að skipuleggja matarnefnd. Tvær mæður sem þrælvanar eru svona ferðum buðu sig fram. Einnig var ákveðið að þeir foreldrar sem koma með hjálpist að með strákana og útbúa nestið á milli mála. Við verðum með ávexti, samlokur og drykki. Óskað er eftir því að þeir sem eiga samlokugrill og geta lánað það geri það. Það gekk listi á milli manna þar sem beðið var um nafn á barni, foreldri og símanúmeri sem hægt er að hringja í ef eitthvað kemur upp á. Liðstjórar verða með listann með númerunum ásamt okkur í foreldraráði.

Útbúnaðarlisti

Monday, April 16, 2012

Ekki æfing á fimmtudaginn

Fimmtudagurinn 19 apríl er sumardagurinn fyrsti og eru öll íþróttahús ÍR lokuð og vegna þess þá verður einginn æfing.

Friday, April 13, 2012

Foreldrafundur

Foreldrafundur vegna Vestmannaeyjarferðar verður haldinn mánudaginn 16. apríl kl: 20:30 í ÍR-heimilinu.
Mikilvægt er að foreldrar drengjana sem fara mæti á fundinn.

kveðja
Foreldraráð

Við viljum að að foreldrar haldi áfram með "Leikmannasöguna" á myndasíðu flokks

Við hvetjum ykkur foreldrar sem farið á mótið að taka nú myndir af krökkunum og setja inn á myndasíður hjá flokkunum. Ef þið eruð ekki viss hvernig þetta er gert er bara að láta þjálfara fá myndirnar á USB og þeir koma þeim áleiðis á vefstjóra ÍR Handbolta sem setja þær þá inn fyrir ykkur.

Það gerist ekkert að sjálfu sér, ...þið eruð fréttamenn okkar og skráið sögu ÍR Handbolta með því að taka myndir.

Öllum myndum er hlaðið inn á myndasíður og Facebook ÍR Handbolta í þeim gæðum sem Blog-síður bjóða upp á til þess að leikannasaga flokks myndist í myndum.

Við viljum að að næstu foreldrar haldi áfram með "Leikmannasöguna" á myndasíðu flokks og hlaði inn myndum sem þeir taka af mótum og viðburðum sem leikmenn viðkomandi flokks taka þátt í. 

Myndirnar verða geymdar þar þannig að þegar þessi hópur af krökkunum okkar verður kominn upp í meistaraflokk, þá sjá strákar og stelpur sem eru að byrja að stunda handbolta eftir 10 ár hverjir hafa farið í gegnum þennan 7.- , 6.- , 5- ,........ og upp í meistaraflokk.

Þannig að tilvonandi fyrirmyndir og landsliðsmenn og konur næstu kynslóða "Strákarnir & Stelpurnar okkar" verða hér í myndum á blog-síðum og Facebook ÍR Handbolta.

Myndaalbúm hjá stelpunum inniheldur nú 14 albúm.
https://picasaweb.google.com/irstelpur6fl

Myndaalbúm hjá strákunum inniheldur 23 albúm og er það hér.
https://picasaweb.google.com/114150013007643981679


Myndbönd eiga ekki að fara í þessi albúm, heldur á YouTube rás viðkomandi flokks.

 Við viljum að að næstu foreldrar haldi áfram með "Leikmannasöguna" á myndasíðu flokks
og hlaði inn myndum sem þeir taka af mótum og viðburðum sem leikmenn viðkomandi flokks taka þátt í. 

Tilvonandi fyrirmyndir og landsliðsmenn og konur næstu kynslóða
"Strákarnir & Stelpurnar okkar" verða þá hér í myndum á blog-síðum og Facebook ÍR Handbolta.


Monday, April 2, 2012

Vestmannaeyjar Greiða þarf fyrir 12.4

Kostnaður vegna Vestmannaeyjaferðar er 18.000 kr.
Leggja þarf inn á reikning 0115-05-68235, kt 521087-1109. Setja nafn barns og kennitölu í skýringu.
Þeir foreldrar sem vilja fá pantað í Herjólf um leið og drengirnir hafi samband við Birgi Gunnarsson í netfangið BGN@eimskip.is

kveðja foreldraráð