Wednesday, April 30, 2014

Mót helgina 2-5 maí yngraár

Þá er komið að móti hjá drengjum á yngraári. Spilað verður í Dalhúsum (fjölnisheimili) Grafarvogi. Mæting er 30 min fyrir fysta leik. Mæta með búning, gott nesti og auðvitað  góða skapið!  Vinsamlegast tilkynnið forföll. 
ÍR1: Bergvin, Daníel, Róbert Snær, Hlynur, Ari, Egill Skorri, Gabríel Daði.
Völlur 1
Selfoss 1
ÍR 1
14:30
laugardagur
Völlur 2
Ír 1
Fram 1
15:30
laugardagur
Völlur 1
Víkingur 1
ÍR 1
16:30
laugardagur
Völlur 2
ÍR 1
HK 1
17:30
laugardagur



Þá er komið að móti hjá drengjum á yngraári. Spilað verður í Dalhúsum (fjölnisheimili) Grafarvogi. Mæting er 30 min fyrir fysta leik. Mæta með búning, gott nesti og auðvitað  góða skapið!  Vinsamlegast tilkynnið forföll. ATH: leikið er bæði á föstu- og sunnudegi!
ÍR2: Matthías, Bjarni Dagur, Stefán Örn, Jón Brynjar, Fannar Már,
Völlur 1
HKR 1
ÍR 2
17:30
föstudagur
Völlur 2
Þróttur 2
ÍR 2
19:00
föstudagur
Völlur 2
ÍR 2
Afturelding 3
20:30
föstudagur
Völlur 2
HK kór 2
ÍR 2
9:00
sunnudagur
Völlur 2
ÍR 2
Haukar 4
10:30
sunnudagur

Monday, April 21, 2014

Æfing 22.4

Ætla minna á æfing þriðjudaginn 22 apríl á venjulegum tíma 17:10. Síðan eiga þeir að leiða inná í leik ÍR-Gróttu þann 24 apríl í Austurbergi kl 16:00 en þeir eiga mæta 15:30 í Austurberg.

Kv Bogi Örn

Monday, March 24, 2014

Mót yngraár 28-30 mars

Þá er komið að 4 mótinu hjá drengjum á yngraári. Spilað verður í Safamýrini og spilum við bara á laugardeginum. Mæting er 30 min fyrir fysta leik. Mæta í búning og gott nesti. Vinsamlegast tilkynnið forföll.

Bergvin, Daníel, Róbert Snær, Hlynur, Ari, Egill Skorri, Gabríel Daði.
13:00
1. B
Haukar 1
ÍR 1
14:00
1. B
ÍR 1
HK Kór 1
15:00
1. B
ÍR 1
FH 1
17:00
1. B
ÍR 1
Selfoss 1






Þá er komið að 4 mótinu hjá drengjum á yngraári. Spilað verður í Safamýrini og spilum við bara á föstudeginum. Mæting er 30 min fyrir fysta leik. Mæta í búning og gott nesti. Vinsamlegst tilkynnið forföll.

Matthías, Bjarni Dagur, Stefán Örn, Jón Brynjar, Fannar Már, Ingólfur
16:00
4. A
ÍR 2
Fjölnir 1
17:00
4. A
ÍR 2
Fjölnir 2
18:00
4. A
ÍR 2
Þróttur 2
19:00
4. A
ÍR 2
Haukar 3


Bogi Örn 8446820

Thursday, March 13, 2014

Foreldrafundur

Mánudaginn 17 mars ætla ég að halda foreldrafund með foreldrum drengja á eldraári eða þeirra sem eiga stráka fædda 2002. Umræðuefni er Akureyraferð þann 25-27 apríl. Fundur verður í Austurbergi eða í Undirheimum kl 20:00.

Kv Bogi Örn 8446820

Tuesday, March 11, 2014

Mót 15 mars

Þá er komið að 4 mótinu hjá drengjum á eldraári. Spilað verður í Kórnum og spilum við bara á laugardeginum. Mæting er 30 min fyrir fysta leik. Mæta í búning og gott nesti.

Benedikt, Bjarki Már, Elvar, Róbert, Heiðar, Hjálmar, Adam, Vilhjálmur, Stefán og Bergvin

09:00
2 A
KA 2
-
ÍR 1
10:30
2 A
ÍR 1
-
Þór Ak. 2
11:30
2 A
Selfoss 1
-
ÍR 1
12:30
2 A
ÍR 1
-
Fram 1

Bogi Örn 8446820

AÐALFUNDUR HANDKNATTLEIKSDEILDAR ÍR

Aðalfundur handknattleiksdeildar ÍR verður haldinn miðvikudaginn 19. mars n.k.

 

Fundartími: miðvikudaginn 19. mars 2013 kl. 19:30

Staður: ÍR heimilið í mjódd, 2. hæð

Dagskrá:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál.

 

Við hvetjum allt áhugafólk um ÍR-handbolta að mæta og kynnast starfinu betur. Framboð hafa borist í allar stöður stjórnar en við hvetjum fólk til að íhuga að koma og taka þátt.

Kveðja Stjórnin

 

Thursday, February 27, 2014

Bikarhelgin - Pistill úr klefanum frá Bjarka Sig.

Sælir kæru ÍR-ingar - velkomin í  bikarhelgina okkar.

Við áttum stórkostlega "Final Four" bikarhelgi á síðasta ári þegar við lönduðum bikarnum. Þá var Höllin máluð blá að okkar hætti og stuðningurinn var frábær á báðum leikjum okkar enda slógum við aðsóknarmetið þá helgi.  

Nú ætlum við að endurtaka leikinn frá því í fyrra og taka þessa bikarhelgi með trompi,  því með ykkar stuðningi í stúkunni er fátt sem stöðvar okkur ÍR-inga.      

Við mætum mjög góðu liði Aftureldingar í undanúrslitunum á föstudeginum  28. Feb. kl. 17:15.    Afturelding hefur ekki tapað leik á þessu tímabili og eru strákarnir þar búnir að  slá út tvö  úrvalsdeildarlið á leið sinni í Final Four.     Þeir eru því sýnd veiði en ekki gefin,  enda er mjög  mikilvægt að fjölmenna á leikinn í ÍR-litunum og styðja okkur strákana í að komast í gegnum hann og  alla leið í úrslitaleikinn, sem verður síðan á laugardaginn kl. 16:00 gegn FH eða Haukum.

Undirbúningur hefur gengið vel í okkar herbúðum  og höfum við farið vel yfir það á video fundum hvernig andstæðingar okkar spila.     Okkar plan liggur því  ljóst fyrir enda eru leikmenn og skipulagið klárt.   

Strákarnir okkar mæta því fullir sjálfstrausts og tilhlökkunar í þessi verkefni sem býða okkar núna um helgina, og með ykkar stuðning og stemningu förum við alla leið og höldum bikarnum okkar í Breiðholti þar sem hann á heima.

Það er síðan okkar von að ÍR Handbolti  landi tveimur bikarmeisturum þessa helgi því Elli Ísfeld og strákarnir í 4.fl. ka.E hafa einnig tryggt sig inn í úrslitaleikinn í bikarnum og spila þeir við ÍBV kl. 14:30 á sunnudeginum í Höllinni.
Við óskum þeim góðs gengis og vitum að ÍR-ingar fjölmenna til að styðja þá líka. 

Sjáumst í Höllinni  
Áfram ÍR !!

Kv.
Bjarki Sig.